Í húsinu eru 3 svefnherbergi, með rúmum fyrir 10 fullorðna, fullbúið öllum helstu heimilistækjum.

Í húsinu, sem er 88 fm. eru þrjú svefnherbergi, þrjú tvíbreið rúm (tvö 140 cm., og eitt 180 cm. á breidd) og í tveimur herbergjum eru auk þess kojur (90 cm. á breidd) og eitt einbreitt rúm (90 cm.)
í einu herbergjanna. Húsið er búið öllum helstu þægindum s.s flatskjá í stofu og stórum tvískiptum ísskáp. Í húsinu er stórt alrými. Heitur pottur er við húsið og 12 fm. gufubað er í sérhúsi með sturtu.
Internet-tenging er í húsinu. Leiðbeiningar eru í húsinu með tengingar.


Húsið er í útleigu allt árið. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.