Í húsinu sem er 74 fm. eru 3 svefnherbergi, með rúmum fyrir 8 fullorðna, fullbúið öllum helstu heimilistækjum og með heitum potti.

Öll herbergin eru með tvíbreiðum rúmum (140 cm., 180 cm. og 160 cm. á breidd) og í tveimur herbergjum eru auk þess kojur (90 cm. á breidd). Húsið er búið öllum helstu þægindum s.s flatskjá í stofu. Lítill ísskápur m/fyrsti er í eldhúsi og stór tvískiptur ísskápur m/frysti í útigeymslu.
Internet-tenging er í húsinu. 


Húsið er í útleigu allt árið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.