Í húsinu 88 fm. eru 3 svefnherbergi, með rúmum fyrir 8 fullorðna, fullbúið öllum helstu heimilistækjum og með heitum potti. Aðgengi fyrir fatlaða.

Herbergin eru öll með tvíbreiðum rúmum (120 cm., 180 cm. og 150 cm. á breidd) og í tveimur herbergjum eru auk þess kojur (90 cm. á breidd). Húsið er búið öllum helstu þægindum s.s flatskjá í stofu og stórum tvískiptum ísskáp.
Internet-tenging er í húsinu. Leiðbeiningar eru í húsinu með tengingar.


Húsið er í útleigu allt árið. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.