Íbúðin er tæplega 70 fermetra, Í alrými er stofa, borðstofa og eldhús. Svefnherbergi með hjónarúmi og annað lítið herbergi með koju (báðar hæðir einbreiðar), einnig fylgir ein aukadýna og sængur og koddar fyrir 5 manns. Íbúðinni fylgir barnaferðarúm (ekki barnasæng og koddi) og barnastóll.  Á baði er sturta og þvottavél einnig fylgir straujárn og strauborð.  Í eldhúsi er allur búnaður og tæki til heimilishalds, borðbúnaður er fyrir 12 manns og uppþvottavél. Leigjendur verða sjálfir að koma með sængurlín og handklæði. Nettenging frá Vodafone, leiðbeiningar um tengingu er í íbúðinni. -Skylt er að nota sængurlín í öll rúm - Þrifagjald er 3000 kr fyrir fyrstu nótt og 500 kr fyrir hverja nótt eftir það, ekki þó lengur en í 7 nætur. Óheimilt er að vera með gæludýr í íbúðinni.