Íbúðin er tæplega 70 fermetra, í alrými er stofa, borðstofa og eldhús. Svefnherbergi með hjónarúmi og annað lítið herbergi með koju (báðar hæðir einbreiðar). í íbúðinni er ein aukadýna og sængur og koddar fyrir 5 manns, auk þess fylgir barnaferðarúm (ekki barnasæng og koddi) og barnastóll.  Á baði er sturta og þvottavél, einnig fylgir straujárn og strauborð. Í eldhúsi er allur búnaður og tæki til heimilishalds, borðbúnaður er fyrir 10 manns og uppþvottavél. Leigjendur verða sjálfir að koma með sængurlín og handklæði. Nettenging frá Vodafone, leiðbeiningar eru í íbúðinni - Skylt er að nota sængulín í öll rúm -  Þrifagjald er 3000 kr fyrir fyrstu nótt og 500 kr fyrir hverja nótt eftir það, ekki þó lengur en í 7 nætur.