Litla-Brekka er annað tveggja orlofshúsa Blaðamannafélags Íslands í Brekkuskógi. Í Litlu-Brekku eru tvö svefnherbergi, annað með ca 140 cm hjónarúmi og fataskápum og hitt með ca 80 cm breiðu rúmi og kojum. Í húsinu eru sængur en gestir þurfa að koma með lök og sængurver. Ekki er þvottavél í Litlu-Brekku.
Húsið er orðið frekar lélegt og stendur til að fara í endurbætur á því á næsta ári. Heiti potturinn er stundum til leiðinda vegna þess hve lítið heitt vatn er á orlofshúsasvæðinu. Því tekur oft mjög langan tíma að fylla hann og stundum næst ekki nægilegur hiti á hann. Það stendur til bóta á næsta ári, en því miður er ekki hægt að laga það með litlum tilkostnaði og því verður það látið bíða þar til farið verður í allsherjarframkvæmdir.
|