Upplýsingar eignar  -  Akureyri - Seljahlíð
Almennar upplýsingar
Nafn Akureyri - Seljahlíð Tegund Íbúð
Svæði Norðurland Öryggis kóði
Heimilisfang Seljahlíð 3 C, 600 Akureyri
Lýsing

Íbúðin er að Seljahlíð 3c á Akureyri. Um er að ræða lítið raðhús sem er stofa og tvö svefnherbergi. Í hjónaherberginu er tvíbreitt stórt rúm, auk smábarnarúms og í hinu herberginu er koja með tvíbreiðu rúmi niðri, þar sem þrír geta sofið. Raðhúsið er búið öllum helstu nútímaþægindum, þvottavél, sjónvarpi, nettengingu og síma og þar er sérverönd með gasgrilli og útihúsgögnum.