Hús PFÍ eru nr. 2 og nr. 4. Húsin eru í kjarrivöxnu fallegu umhverfi og standa við Eiðavatn. Um 14km akstur er til Egilsstaða þar sem er verslun, góð sundlaug og önnur þjónusta. Hús nr. 2 er 54m2 og eru 2 svefnherbergi með svefnstæðum fyrir 6 (tvö tvöföld rúm og koja). Allur venjulegur búnaður er í húsunum. Sængur og koddar fylgja en hafa þarf með sér rúmföt, handklæði, diskaþurrkur, borðklúta, salernispappír, sápur o.þ.h. Áhöld til ræstinga og gólfmoppa er í húsinu. Gestir þurfa að þrífa og skilja vel við húsin fyrir næsta leigutaka. Húsum PFÍ fylgir bátur og björgunarvesti. Gasgrill er í húsunum. PFÍ er með opinn reikning hjá Olís og þar má láta skrifa gas á félagið gegn framvisun samnings.
Hús nr. 70 sem er í Stekkjarhól er 7manna, 7 fullorðnir + 1 barn, 100,3fm. Í húsinu eru 3 svefnherbergi. Hjónarúm í tveimur herbergjum og eitt með fjölskyldukoju þar sem neðri koja er breiðari. Uppþvottavél er í húsinu. Þvottavél með þurrkara. Barnastóll í húsinu og barnarúm. Allur nauðsynlegur húsbúnaður er í húsinu. Sængur og koddar fylgja. Leigjendur þurfa að hafa með sér rúmföt, handklæði, salernispappír, diskaþurrkur, borðtusku og aðra klúta til ræstinga. Í húsinu eru öll áhöld, sápur og gólfmoppa til ræstinga. Skila þarf húsinu hreinu fyrir næsta leigutaka. Skilja á gólfmoppu eftir í húsunum. Umsjónarmaður fer yfir húsin á föstudögum. Reykingar stranglega bannaðar. Vodafone hefur sett upp þráðlaust netsamband í Munaðarnesi. Upplýsingar eru í húsunum. Heitur pottur er við húsið og gasgrill. Við Þjónustumiðstöðina er Leikgarður fyrir börn þar er einnig minigolf og fótboltagervigrasvöllur. Fjöldi fallegra gönguleiða eru í nágrenninu. Göngufæri er að Glanna, Laxfossi og Paradísarlaut svo eitthvað sé nefnt. Ekki er heimilt að vera með gæludýr í orlofshverfinu.
Til að bóka leigu í vetur þarf að hafa samband við umsjónarmann í síma 4626199 eða með því að senda póst á netfangð illugastadir@simnet.is Orlofshús PFÍ að Illugastöðum nr. 22 er í Fnjóskadal í 45km fjarlægð frá Akureyri. Húsið var endurnýjað að utan 2016. Með nýrri utanhúss klæðningu, þaki, gluggum og hurðum. Veturinn 2018 var húsið endurnýjað að innan. Nýtt baðherbergi, húsgögn og gólfefni endurnýjuð og svefnherbergjum breytt. Húsið er 6 manna með 2 svefnherbergjum. Í öðru herberginu er rúm 140x2, í hinu eru 2 rúm 80x2 síðan eru 2 dýnur 70x2. Sængur og koddar eru í húsinu fyrir 6 manns. Í eldhúsi er eldavél með ofni. Baðherbergi með sturtu. Á verönd er heitur pottur og gasgrill. Allur nauðsynlegur búnaður er í húsinu. Gott er að hafa með sér auka tuskur og diskaþurrkur. Ræstiefni er í húsunum. Leigutakar þurfa að hafa með sér rúmföt, handklæði, handsápu, uppþvottalög og salernispappír. Hægt er að leigja rúmföt og handklæði á staðnum. Hægt er að fá aukadýnur og sængur í Kjarnahúsi. Barnarúm og stóll er í húsinu. Sundlaug er að Illugastöðum sem er opin á sumrin. Minigolf er á svæðinu og kylfur eru leigðar út hjá sundlaugarverði, einnig er fótboltavöllur, blakvöllur og góð leiktæki á leiksvæði við sundlaug.Gestir orlofsgesta geta fengið að tjalda eða vera með húsbíl, fellihýsi eða tjaldvagna á ákveðnum svæðum en það þarf að fá leyfi hjá umsjónarfólki varðandi staðsetningu. Það eru ekki rafmagnstenglar fyrir tækin á staðnum. Ekki er leyfilegt að tjalda við húsin. Skila þarf húsi á skiptidegi fyrir kl. 12 en ef farið er á öðrum tíma þarf að láta vita af því. Heimilisdýr eru ekki leyfð á svæðinu.
Stakkholt 2B í Reykjavík íbúð 101. Íbúðin er í nýlegu lyftuhúsi á 1. hæð. Íbúðin er leigð allt árið. Leiga fer fram gegnum skrifstofu PFÍ. Íbúðin er þriggja herbergja. Stofa, hjónaherbergi með hjónarúmi og barnaherbergi með rúmi 140x2. Barnarúm og barnastóll fylgja. 2 góðar aukadýnur eru í íbúðinni. Sængur og koddar eru fyrir 8. Leigjendur þurfa að hafa með sér rúmföt (lín) og handklæði. Lyklar verða ekki notaðir í framtíðinni en aðgangskerfið er rafrænt, rafrænir dropar í stað lykla. Þeir verða notaðir til að komast í íbúð, inn í sameign og bílageymslu. Eldhús er vel búið. Diskaþurrkur, borðklútar og gólfmoppa fylgja einnig allur búnaður og sápa til þrifa.Stórt baðherbergi með sturtu, þvottavél og þurrkara. Íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílakjallara merkt 101 fyrir íbúð 101 og er notkun þess heimil fyrir dvalargesti. Nánari upplýsingar eru í leigusamningi. Sé íbúðinni ekki skilað hreinni verður leigutaki krafinn um þrifagjald 15.000kr.Í íbúðinni er nettenging frá Símanum. Íbúðin er vel staðsett í miðbæ Reykjavíkur við Hlemm. Nauðsynlegt er að virða húsreglur sem eru í sameign. Reykingar eru bannaðar í íbúðinni.Ekki er heimilt að hafa hunda né önnur gæludýr.
Ásatún 28-306. Íbúðin er leigð allt árið. Íbúðin er á 3. hæð. Lyfta er í húsinu. Þetta er velbúin íbúð með svölum. Íbúðin er fjögurra herbergja. Stofa, hjónaherbergi með rúmi 160x2m og barnarúmi, herbergi með rúmi 120x2m og herbergi með tveimur rúmum 90x2m. Sængur og koddar eru fyrir 8. Diskaþurrkur og borðklútar fylgja einnig allur búnaður til þrifa. Sé íbúðinni ekki skilað hreinni verður leigutaki krafinn um þrifagjald 15.000 kr. Íbúðin er byggð 2016. Reykingar eru bannaðar. Ekki er heimilt að hafa hunda né önnur gæludýr.