1. Að skrá sig inn
 
Þú skráir þig inn með því að smella á innskráningu, efst í hægra horninu.


Innskráning fer fram í gegnum island.is



2. Að finna laust tímabil
Til þess að sjá laus tímabil smellir þú á laus tímabil á láréttu valstikunni (menu).



3. Að bóka sér hús
Smelltu á dagatalið þar sem eru lausir dagar (hvítir ferningar). Til þess að fara í næsta mánuð er smellt á viðeigandi mánuð fyrir ofan dagatalið.
Þegar þú hefur valið dag kemur upp sprettigluggi (pop up) þar sem þú ert beðinn um að velja lokadagsetningu.


Eftir að tímabil er valið er smellt á senda og þá þarf að ganga frá greiðslu.