Um er að ræða svokölluð "fjarkahús" þar sem fjórar íbúðir eru í húsinu. Íbúðirnar eru á tveimur hæðum. Á neðri hæð er gengið inn í rúmgott alrými, stofa, eldhús og borðstofa. Einnig er eitt svefnherbergi með hjónarúmi (152 cm) á neðri hæð. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi, annað með hjónarúmi (152 cm) og hitt með koju fyrir tvo. Útgengi út á svalir. Baðherbergi er á báðum hæðum. Góð sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði. Sér bílastæði á lokaðri lóð fylgir. Á La Zenía svæðinu suður af Torrevieja stutt frá Villamartin er ný íbúð MATVÍS. Aksturstími frá Alicante flugvelli er ca 50 mínútur sé farið eftir N332. Íbúðin er í ca 20 mín. göngufæri (ca 2.5 km) frá La Zenía Boulevard verslunarmiðstöðinni. Einnig er örstutt að ganga í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastða og verslana. Miðborg Torrevieja er í ca 15 mín. akstursleið. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu t.d. Villarartin, Las RAmblas, Campoamor, Las Colinas ofl. Lyklar sækjast á skrifstofu MATVÍS fyrir brottför og skilast þangað aftur.