Munaðarnes í Borgarfirði er óþarft að kynna því margir hafa dvalist þar í gegnum árin. Í húsinu  eru tvö herbergi með tvíbreiðum rúmum og eitt herbergi með tveimur einbreiðum rúmum  auk barnarúms. Húsið var endurbyggt 2020 og er það nú einstaklega glæsilegt og vel búið. Veröndin við húsin er stór og á henni heitur pottur. Lögð hefur verið áhersla á að merkja gönguleiðir um svæðið. Í Borgarfirði eru ótal útivistarmöguleikar. Sundlaugin að Varmalandi, Grábrók og eins hefur Skógrækt ríkisins opnað reit sinn við Hreðavatn til útivistar og gert gönguleiðir um svæðið, sem er sérstaklega skemmtilegt. Mjög stutt er að golfvellinum við Glanna og fylgir húsinu aðgangur að golfvellinum fyrir tvo. Sýna þarf leigusamning til að fá að spila frítt. Hundar eru stranglega bannaðir á svæðinu.

Athugið að það er bannað að framleigja orlofseignir til annarra og skal skráður leigjandi ávallt vera sá sem nýtir dvölina.