Glæsilegt orlofshús LL að Geysi í Haukadal í Biskupstungum var tekið í notkun sumarið 2007. Bústaðurinn er um 130 fermetrar. Neðri hæðin er um 78 fermetrar, þar er eldhús, stofa, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Efri hæðin er um 56 fermetra svefnloft, sem er frekar lágt undir loft að hluta til en þar er þrjú rúm, tvíbreiður svefnsófi og fjórar aukadýnur. Dvalargestir þurfa að hafa með sér sængurföt (lín) handklæði, diskaþurrkur og WC pappír.

Það er enginn umsjónarmaður sem fer í bústaðinn eftir hverja helgi svo við verðum að treysta á að okkar félagsmenn skilji við eins og þeir vilja sjálfir koma að bústaðnum. 


Fáein minnisatriði:

Gas: Ef gasið klárast þá vinsamlega farið með kútinn í Bjarnabúð í Reykholti og fáið áfyllingu, skrifast hjá LL 540574-0149.  Aukakúturinn á alltaf að vera fullur. Í skúrnum eru auka álbakkar til að hafa undir grillinu, þeim þarf að skipta út eftir þörfum, þar er líka plastskafa sem er hentug til að skafa hliðar grillsins að innan.

 Potturinn: Þar sem að þetta er rafmagnspottur þá þarf að gæta fyllsta hreinlætis áður en farið er í pottinn, allir í sturtu. Ef vatnsborðið í pottinum hefur lækkað eins og oft vill gerast þá vinsamlega bætið vatni í pottinn með slöngunni sem er inni á baði (eða í skúrnum). Annars nær potturinn ekki að hita sig. Aukasíur eru inni í hitakompu. Klórtöflur eru settar í flotstykkið, þær eiga að skammta hæfilegt magn út í vatnið, bæta þarf í á ca viku fresti. Ef tæma þarf pottinn þá er krani á honum utanverðum vinstramegin séð frá húsinu og hann þarf að skrúfa til vinstri.  Það verður alltaf eitthvað vatn eftir en það er dæla inní skúrnum sem hægt er að nota og er hún miklu fljótari að tæma en þessi krani. Söluaðili bendir á að ekki er æskilegt að nota sápu við að þrífa pottinn, síubúnaðurinn er það öflugur að hann á að ná að þrífa pottinn. ATH það eru óhreinindi í vatninu ofan af Haukadalsheiði og því hefur engan tilgang að vera alltaf að skipta um vatn í pottinum.

 Rusl: Athugið að taka með ykkur allt rusl, það er engin sorphirða á svæðinu. Tunnan fyrir utan er eingöngu til að verja rusl fyrir meindýrum á meðan þið eruð í bústaðnum. Gámastöðin er í Reykholti.

 Þvottur: Þar sem enginn er umsjónarmaðurinn þá mælumst við til um að dvalargestir skelli í eina suðuvél af tuskum og moppum ef á þarf að halda. Hengja má þær á þvottagrind sem er annaðhvort í hitakompunni eða skúrnum. Ef „slys“ verða og yfirdýnur þarfnast þvotta vinsamlega setjið þær á 60 gráður og skrifið gjarna miða til næsta gestar um af hvaða rúmi yfirdýnan er ef hún er blaut á þvottagrindinni við brottför.

 Hreinlætisvörur: Ef hreinlætisvörur vantar eða þið hafið einhverjar athugasemdir vinsamlega hafið samband við skrifstofu í síma 525-8360 eða 866-5145. Eða á netfangið gulla@logreglumenn.is       

Gæludýr: Eru leyfð með ströngum skilyrðum um umgengni, þrífa þarf vandlega eftir dvöl og ekki leyfa þeim að vera upp í rúmum og sófum. Næsti gestur gæti haft ofnæmi/óþol fyrir dýrahárum. 

Athugið að það er bannað að framleigja orlofseignir til annarra og skal skráður leigjandi ávallt vera sá sem nýtir dvölina. 


Eftir er að finna nafn á bústaðinn og eru félagsmenn beðnir um að koma tillögur að nafngift og óskast þær sendar á netfang LL: ll@bsrb.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.