Landssambandið hefur á leigu íbúðarhúsið að Felli í Biskupstungum sem hefur verið mjög vinsæll gistimöguleiki. Húsið er um 140 fm. að stærð með 8 rúmstæðum og 6 lausum dýnum svo allt að 14 manns getur gist og eru sængur og koddar fyrir 12 til staðar. Búið er að endurbyggja húsið allt að innan á mjög smekklegan hátt með öllum nýtískuþægindum. Einnig er stór og góð sólverönd út frá stofunni þar sem er heitur pottur.
Dvalargestir þurfa að hafa með sér sængurfatnað (lín), handklæði, diskaþurrkur, sápu og salernispappír. Lyklar eru afhentir í samráði við skrifstofu LL.
Fell er um 100 km frá Reykjavík og þaðan er stutt til margra vinsælla ferðamannastaða allt um kring, s.s. Gullfoss, Geysis, Laugarvatns, Þingvalla o.fl. Næsti þéttbýliskjarni, er Reykholt í Biskupstungum, (1,5 km) þar er sundlaug, verslun, veitingar, banki, íþróttahús o.fl.