Einungis er hægt að kaupa þrif á húsunum í Brekkuskógi sem eru Vallárvegur1, Vallárvegur 7 og Brekkuheiði 29

Þrifafyrirtækið Þvottur&LÍ býður félagsmönnum að kaupa þrif eftir dvöl.  Orlofshúsagestir panta þrif sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.  hægt er að fá upplýsingar um verð og panta þrif með því að senda póst á netfangið panta@thvotturoglin.is.  Taka skal fram um hvaða hús ræðir, dagsetningu og brottfarartíma.  Hafa þarf í huga að Þvottur&LÍn vaska ekki upp.  Ef gestir vilja að ruslið sé tekið er gott að taka það saman í einn poka sem má skilja eftir við inngang.  Þá er hægt að panta þrif á bakaraofni og grilli sér.  Þvottur&Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) fyrir orlofshúsagesti.  Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst á panta@thvotturoglin.is.  Gott er að panta lín með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara.