Um 90 fm íbúð á þriðju hæð íbúð 303 í Sóltúni 7 (hvít og gul blokk).  Tvö  svefnherbergi, eldhús stofa og baðherbergi.   

 

Leigutaki er skuldbundinn til að sjá um að vel sé farið með húsnæðið, sjá um að ræsta það og koma því í það horf að hægt sé að afhenda það næstu gestum.  Leigutaki ber bótaskyldu varðandi tjón á húsnæðinu og innanstokksmunum sem kunna að verða af hans völdum.  Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingi á orlofskerfinu og getur þá ekki bókað orlofshús á orlofsvefnum.  Bannað er að reykja í orlofskostunum.  Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma.  Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta þá vinsamlegast látið umsjónarmann eða skrifstofu félagsins vita.

Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að komast í íbúðina eða úr íbúðinni vegna ófærðar eða óveðurs.

Stranglega er bannað að framleigja íbúðina til ættingja eða vina