Næstu verslanir eru i Baulu og Borgarnesi einnig er lítil verslun með helstu nauðsynjavörum í háskólahverfinu í Bifröst. Alla almenna þjónustu er að finna í Borgarnesi. Fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir er að finna í nágrenninu meðfram vatninu, niður að Norðurá að Glanna og Paradís. Ýmis fjöll má ganga, t.d. Vikrafjall og Hraunsnefsöxl. Sundlaugar eru á Varmalandi 17 km, Kleppjárnsreykjum 32 km, Borgarnesi 33 km og Húsafelli 55 km. Golfvöllur er í Borgarnesi, á Húsafelli og á Glannaflötum svo eitthvað sé nefnt.
 
Bannað er að framleigja húsið til ættingja eða vina.  Ef hætt er við hús er ekki hægt að fá endurgreitt nema hægt verði að leigja húsið öðrum.
Umsjónarmaður hússins er Birgir Hauksson sími 893 3229
Fóstri Hússins er Sveinn Magnússon læknir
 
Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að komast í húsið eða úr húsinu vegna ófærðar eða óveðurs.
Leigutaki er skuldbundinn til að sjá um að vel sé farið með húsnæðið, sjá um að ræsta það og koma því í það horf að hægt sé að afhenda það nýjum gestum.  Leigutaki ber bótaskyldu varðandi tjón á húsnæðinu og innanstokksmunum sem kunna að verða af hans völdum.  Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur þá ekki bókað hús á orlofsvefnum.  Bannað er að reykja í orlofskostunum.
Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma.  Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið þá umsjónarmann eða skrifstofu félagsins vita