Heilsárhús í landi Brekkuskógar í Biskupstungum með palli og heitum potti.  Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhúskrókur, rúmgóð stofa og geymsla.

 

Leiðin - Ekinn er Laugardalsvegur frá Laugarvatni að Geysi. Beygt er til vinstri inn þar sem merkt er Brekkuskógur orlofssvæði BHM og ekið þaðan eftir skiltum merktum Aldan og BI bústaðurinn er yst á svæðinu til vinstri.

Verslun og þjónusta - Í Úthlíð er lítil verslun, einnig er verslun á Laugarvatni. Í Brekkuskógi er þjónustumiðstöð sem er opin yfir sumarorlofstímann frá 1. júní til 1. september og sama gildir um páskana.

Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að komast í húsið eða úr húsinu vegna ófærðar eða óveðurs.

Ath til að fá vatn á húsið þarf að kveikja á rofa sem er í forstofu hússins.

Ruslagámar eru í reykholti og á Laugarvatni

 

Leigutaki er skuldbundinn til að sjá um að vel sé farið með húsnæðið, sjá um að ræsta það og koma því í það horf að hægt sé að afhenda það nýjum gestum.  Leigutaki ber bótaskyldu varðandi tjón á húsnæðinu og innanstokksmunum sem kunna að verða af hans völdum.  Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur þá ekki bókað hús á vefnum.  Bannað er að reykja í orlofskostunum.

Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma.  Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið þá umsjónarmann eða skrifstofu félagsins vita

Orlofsgestir eru beðnir um að endurnýja gaskúta ef þarf og senda greiðslukvittun á gudrun@lis.is til að fá endurgreitt

 

Útivist - Stutt er að Gullfossi og Geysi en þar er sundlaug og veitingastaður. Á Laugarvatni er íþróttasvæði, sundlaug og landsþekkt gufubað. Sundlaug er í Úthlíð og níu holu golfvöllur. Annar slíkur er í Miðdal, miðja vegu milli Brekku og Laugarvatns.

Útileiktæki eru stutt frá húsinu.

Ath stanglega bannað er að framleigja fenginn bústað til vina eða ættingja. Ef hætt er við húsið er ekki hægt að fá endurgreitt nema hægt verði að leigja húsið öðrum.

 

Þrifafyrirtækið Þvottur&Lín býður félagsmönnum að kaupa þrif eftir dvöl.  Orlofshúsagestir panta þrif sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.  Hægt er að fá upplýsingar um verð og panta þrif með því að senda póst á netfangið panta@thvotturoglin.is.  Taka skal fram hvaða hús um ræðir, dagsetningu og brottfarartíma.  Hafa þarf í huga að Þvottur&Lín vaska ekki upp.  Ef gestir vilja að ruslið sé tekið er gott að taka það saman í einn poka sem má skilja eftir við inngang.  Þá er hægt að panta þrif á bakaraofni og grilli sér.  Þvottur&Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) fyrir orlofshúsagesti.  Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst á panta@thvotturoglin.is.  Gott er að panta lín með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrir vara.

 

Umsjónarmaður hússins er Magnús Magnússon sími 866 8378

Fóstri hússins er Snorri Einarsson læknir