Nýtt heilsárshús í neðri hálöndunum á Akureyri við Hyrnuland 16.  Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús og stofa í einu rými.  Heitur pottur á verönd.   

Tvö svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum og eitt með tveimur einbreiðum í húsinu er líka ferðarúm fyrir fullorðna og ferðabarnarúm.  Sængur og koddar fyrir 7 manns.  Taka þarf með sér sænguver, lök og handklæði.

Umsjón með húsinu hefur Guðný Jensdóttir sími 895 4654

Stranglega bannað er að framleigja húsið til ættingja eða vina.  Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að komast í húsið eða úr húsinu vegna ófærðar eða óveðurs.  Leigutaki er skuldbundinn til að sjá um að vel sé farið með húsið, sjá um að ræsta það og koma því í það horf að hægt sé að afhenda næstu gestum.  Leigutaki ber bótaskyldu varðandi tjón á húsnæðinu eða innanstokksmunum sem kunna að verða af hans völdum.  Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu á orlofsvefnum og getur þá ekki bókað hús á vefnum einnig mun hann fá sendan reikning fyrir þrifum.

Hægt er að kaupa þrif hjá Guðnýju umsjónarkonu í síma 895 4654 en leigutaki þarf þá að skilja þokkalega við taka allt rusl og flöskur.  Leigutaki þarf alltaf að hreinsa pottinn og þrífa grillið.