Austurvegur 2 á Ísafirði er á einni hæð ca 90 fm að stærð það er inn í Blómagarðinum á Ísafirði.  Húsið er byggt 1873 og er kallað búðin í Hæstakaupstað. Eldhús og stofa eru í stóru opnu svæði.  Tvö svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum.  Svefnsófi fyrir 2 í stofu.  Baðherbergi með sturtu, þvottavél og þurrkara.  Öll venjuleg eldhúsáhöld fylgja borðbúnaður fyrir 6 manns.  Sængur og koddar fyrir 6 manns.