Vallárvegur 7 er heilsárshús í landi Brekkuskógar í Biskupstungum. Uumhverfis húsið er pallur og er heitur pottur greyptur ofan í hann.  Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, elhúskrókur, rúmgóð stofa og geymsla. 

Leiðin - Ekinn er Laugardalsvegur frá Laugarvatni að Geysi.  Beygt er til vinstri inn þar sem merkt er Brekkuskógur orlofssvæði BHM og ekið þaðan eftir skiltum merktum Aldan og BI þá sést bústaðurinn yst á svæðinu til vinstri.

Engin útileiktæki eru við húsið.

Ruslagámar fyrir almennt sorp eruí Reykholti og á Laugarvatni

 

Orlofsgestir eru beðnir um að endurnýja gaskúta ef þarf og senda greiðslukvittun á lis.is til að fá endurgreitt.

 

 ATH til að fá vatn í húsið þarf að kveikja á rofa sem er í fostofu hússins.

 

Ath stanglega bannað er að framleigja fenginn bústað til vina eða ættingja. Ef hætt er við húsið er ekki hægt að fá endurgreitt nema hægt verði að leigja húsið öðrum.

Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að komast í húsið eða úr húsinu vegna ófærðar eða óveðurs.

Umsjónarmaður hússins er Magnús Magnússon sími 866 8378.  


Leigutaki er skuldbundinn til að sjá um að vel sé farið með húsnæðið, sjá um að ræsta það og koma því í það horf að hægt sé að afhenda það nýjum gestum.  Leigutaki ber bótaskyldu varðandi tjón á húsnæðinu og innanstokksmunum sem kunna að verða af hans völdum.  Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum.  Bannað er að reykja í orlofskostunum.  

Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma.  Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta viltu þá vinsamlegast láta umsjónarmann eða skrifstofu félagsins vita.

 

Þrifafyrirtækið Þvottur&LÍ býður félagsmönnum að kaupa þrif eftir dvöl.  Orlofshúsagestir panta þrif sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.  hægt er að fá upplýsingar um verð og panta þrif með því að senda póst á netfangið panta@thvotturoglin.is.  Taka skal fram um hvaða hús ræðir, dagsetningu og brottfarartíma.  Hafa þarf í huga að Þvottur&LÍn vaska ekki upp.  Ef gestir vilja að ruslið sé tekið er gott að taka það saman í einn poka sem má skilja eftir við inngang.  Þá er hægt að panta þrif á bakaraofni og grilli sér.  Þvottur&Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) fyrir orlofshúsagesti.  Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst á panta@thvotturoglin.is.  Gott er að panta lín með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara.