Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með heitum potti og sólpalli.  Tvö svefnherbergi, svefnpláss og sængur fyrir 6 þar af er svefnsófi í stofunni fyrir tvo.

Frábær staðsetning á Akureyri, örstutt upp í Hlíðarfjall, inn í Kjarnaskóg, á flugvöllinn, áfram hringveginn til austurs yfir Eyjafjarðará eða inn að Smámunasafninu að Sólgarði í Eyjafjarðarsveit og ekki má gleyma Jólahúsinu.

Leigutaki er skuldbundinn til að sjá til að vel sé farið með húsnæðið, sjá um að ræsta það og koma því í það horf að hægt sé að afhenda það næstu gestum.  Leigutaki ber bótaskyldu varðandi tjón á húsnæðinu og innanstokksmunum sem kunna að verða af hans völdum.  Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur hann þá ekki bókað orlofshús á orlofsvefnum.  Bannað er að reykjaí orlofsíbúðinni.  Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma.  Ef einhverju er ábótavant  varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið þá umsjónarmann eða skrifstofu félagsins vita.

Leigutaki ber sjálfur ábyrgð á að komast í íbúðina eða úr íbúðinni vegna ófærðar eða óveðurs.

 

Ath stranglega bannað er að framleigja íbúðina til vina eða ættingja. Ef hætt er við íbúðina er ekki hægt að fá endurgreitt eða reikning niðurfelldan nema hægt verði að leigja íbúðina öðrum

 

Umsjónarmaður er Ester Þorbergsdóttir sími 898 5586

Fóstri íbúðarinnar er Jón Torfi Halldórsson læknir