Ferðaávísun

Ferðaávísun veitir félagsmönnum aðgang að sértilboðum á gistingu og afþreyingu um allt land.  Samið hefur verið við tugi gististaða um að bjóða okkur allra bestu kjörin.

Félagið niðurgreiðir ferðaávísunina um 25% af valinni upphæð að hámarki 15.000 kr. á ári. 

Þú pantar gistingu þegar þér hentar og greinir frá því að þú hyggist greiða fyrir gistinguna með ferðaávísun frá félaginu. Þegar þú mætir á staðinn nægir að gefa upp kennitölu. Ef hótelið eða gistiheimilið sem þú valdir þér er fullbókað, þegar þú hyggst leggja land undir fót, geturðu notað ávísunina upp í gistingu hjá hvaða öðrum samstarfsaðila okkar sem er. Ávísunin er rafræn og rennur ekki út. Þú getur notað hana þegar þú vilt, að undangenginni bókun hjá viðkomandi gististað.

Ef þú rekst einhvern tíma á annað betra tilboð frá sama hóteli eða gistiheimili, geturðu notað ávísunina upp í það tilboð, eða notað hana að hluta til. Þú ert ekki bundinn af því tilboði sem þú valdir þér upphaflega.

Þú getur fengið ávísunina endurgreidda hvenær sem er, en þá aðeins þá upphæð sem þú lagðir sjálfur út. Þá punkta sem þú notaðir við kaupin, færðu einnig til baka.


Félagsmenn sjá sjálfir um að panta gistingu/afþreyingu.

Ef herbergi er bókað á vefmiðlum, svo sem heimasíðu hótelsins, eða öðrum vefmiðlum, er ekki hægt að greiða fyrir gistinguna með ferðaávísun frá stéttarfélagi, þar sem gestur hefur þá skuldbundið sig til að greiða við komu á hótel þá upphæð sem hann samþykkir við bókun.

Við bókun skal handhafi ferðaávísunar hafa samband við hótel í síma eða með tölvupósti.
Fram skulu koma þessar upplýsingar:


Skoða úrval eða kaupa ferðaávísun