ATH! Frá og með 28. ágúst 2026 verður leyfilegt að vera með gæludýr í húsinu að Strandvegi 26c íbúð 103.
Tveggja herbergja, 60 fm íbúð á jarðhæð að Strandvegi 26, 900 Vestmannaeyjum. Íbúðirnar eru staðsettar í fjölbýlishúsi og er gengið inn í þær frá porti frá Strandvegi.
Íbúðin er með einu svefnherbergi og alrými.
Svefnpláss: Svefnherbergi með fataskáp og tveimur samliggjandi 90x200 sm. rúmum. Svefnsófi í stofu (140x200 sm)
Stofa: Sameiginlegt rými eldhús og stofa. Svefnsófi, snjallsjónvarp og opið WIFI.
Eldhús: Vönduð HTH eldhúsinnrétting með innbyggðum AEG raftækjum; innbyggðum ísskáp/frysti og uppþvottavél. Fullbúið fyrir 6 manns.
Baðherbergi: Veggir og gólf eru flísalögð. Vegghengt WC og sturta með niðurfalli í gólfi. Innrétting og vaskur/blöndunartæki. Þvottavél og þurrkari á baði.
Gólfefni: Harðparket er á gangi og herbergjum, stofu og eldhúsi. Anddyri er flísalagt. Fatahengi er í anddyri. Geymsluskápur á gangi. Upphitun er með gólfhitakerfi (þráðlausir nemar).
Frágangur að utan: Bílastæði eru í porti fyrir framan inngang.
Annað:
Ferðabarnarúm og ein auka svefndýna 70x190 sm. (t.d. fyrir ungling) á staðnum.
Vakin er athygli á að félagsmenn þurfa að flokka sorp á staðnum. Sjá nánari leiðbeiningar í íbúð.
Umsjónarmaður býður upp á möguleika á þrifum á íbúðum við brottför, allar nánari upplýsingar um umsjónarmann er að finna á leigusamningi.
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR