Tveggja herbergja, 60 fm íbúð á jarðhæð að Strandvegi 26, 900 Vestmannaeyjum. Íbúðirnar eru staðsettar í fjölbýlishúsi og er gengið inn í þær frá porti frá Strandvegi. Íbúðin er með einu svefnherbergi og alrými.

Svefnpláss: Svefnherbergi með fataskáp og tveimur samliggjandi 90x200 sm. rúmum. Sameiginlegt rými eldhús og stofa. Svefnsófi í stofu. Svefnflötur 140x200 sm.

Eldhús: Vönduð HTH eldhúsinnrétting með innbyggðum AEG raftækjum; innbyggðum ísskáp/frysti, innbyggðri uppþvottavél, helluborði og ofni. Ljúflokur á skáphurðum. Plastlagðar borðplötur.

Baðherbergi: Veggir og gólf eru flísalögð. Vegghengt WC og sturta með niðurfalli í gólfi. Innrétting og vaskur/blöndunartæki. Þvottavél og þurrkari á baði.

Gólfefni: Harðparket er á gangi og herbergjum, stofu og eldhúsi. Anddyri er flísalagt. Fatahengi er í anddyri. Geymsluskápur á gangi. Upphitun er með gólfhitakerfi (þráðlausir nemar).

Frágangur að utan: Bílastæði verða í porti fyrir framan inngang.

Annað:

Ferðabarnarúm og ein auka svefndýna 70x190 sm. (t.d. fyrir ungling) á staðnum.

Vakin er athygli á að félagsmenn þurfa að flokka sorp á staðnum. Sjá nánari leiðbeiningar í íbúð.

Umsjónarmaður býður upp á möguleika á þrifum á íbúðum við brottför, allar nánari upplýsingar um umsjónarmann er að finna á leigusamningi.

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR