Orlofssjóður KÍ á 52 fm íbúð í raðhúsalengju á Ísafirði með svefnplássi fyrir 4. Hún stendur við Tungubraut á Skeiði sem er hverfi fyrir innan Bónus innst í firðinum.
Fjöldi gesta: 4 einstklingar geta gist í húsinu og eru sængur og koddar fyrir fjóra.
Svefnaðstaða: Svefnherbergi er með tveimur einbreiðum 90cm breiðum rúmum sem stilllt er upp eins og hjónarúmi. Í stofu er tvíbreiður svefnsófi 140cm á breidd.
Gæludýr eru leyfð í Tungubraut 6.
Íverusvæði: Stofa og borðstofa mynda eitt rými og gengið er útá pall frá stofu. Eldhús liggur meðfram gangi á milli forstofu og stofu.
Þvottaaðstaða: Þvottavél og þurrkari eru á baðherbergi.
Baðhergi: með sturtu.
Útisvæði: Við húsið er lítil verönd með útihúsgögnum og gasgrilli.
Umhverfi: Stutt er að fara á bæði skíðasvæðin, golfvöllinn og gott úrval gönguleiða er í firðinum. Á Ísafirði er að finna alla helstu þjónustu s.s. verslanir, kaffihús, veitingastaði, brugghús, bókabúð og bakarí. Einnig er þar að finna apótek, sjúkrahús og heilsugæslu. Tilvalið er að eyða degi í næstu fjörðum og hægt að keyra í allar áttir til að heimsækja einstaka staði eins og til dæmis Bolafjall, Ósvör, Skálavík, Holt og Valagil til að nefna nokkra spennandi heimsóknarmöguleika. Frekari upplýsingar hægt að finna á https://www.westfjords.is/is
Hægt er að kaupa þrif við brottför hjá umsjónarmanni.