Orlofssjóður KÍ á átta íbúðir við Víðihraun 1 – 8 á Bifröst. Allar íbúðinar hafa verið teknar í gegn og bætti við palli og heitum potti.
Bifröst er einstaklega vel staðsett fyrir skemmtilegar dagsferðir ásamt því að vera gott útivistarsvæði.
Golfvöllurinn Glanni er í göngufjarlægð og leiksvæði fyrir börn í þorpinu nálægt íbúðunum.
------------------------------------------
Stærð eignar: 42,9 fm íbúð í raðhúsi.
Fjöldi gesta: 4 max
Svefnaðstaða: Eitt svefnherbergi með tveimur 90 sm rúm og skápum. Í stofu er góður svefnsófi með 140 sm svefnplássi.
Íverusvæði: Komið er inn í íbúðina þar sem taka við stofa og eldhús í sameiginlegu rými. Í íbúð er SMART sjónvarp.
Sjónvarp og internet:
Í íbúðinni er SMART sjónvarp og hægt er að horfa á RÚV í því. Til að horfa á aðrar rásir, þurfa leigjendur sjálfir að gera nauðsynlegar ráðstafanir.
Hægt er að tengjast opnu neti í íbúðinni. Upplýsingar að finna undir netbeini.
Eldhús: Lítil eldhúsinnrétting með ísskáp og eldavél í opnu rými með stofu. Borðbúnaði fyrir 6.
Þvottaaðstaða: Bæði þvottvél og þurrkari í sameiginlegu rými.
Baðherbergi: Lítið baðherbergi með sturtu.
Útisvæði: Verönd með heitum potti, gasgrilli og útihúsgögnum.
Umhverfi: Nágrennið í kringum Bifröst er rómað fyrir náttúrufegurð auk þess að vera einstakt svæði til útiveru.
Aukaþjónusta: Frípassi fyrir tvo á golfvöllinn Glanna er í gildi meðan á dvöl stendur. Sjá fyrirmæli í möppu.
Gæludýr: Gæludýr eru EKKI leyfð í Víðihrauni 1.