Orlofssjóður KÍ festi kaup á 3ja herbergja íbúð á Siglufirði árið 2021 og fékk hún strax góðar viðtökur félaga og góðar umsagnir. Íbúðin er í gamla gagnfræðaskólanum á Siglufirði en húsið var nýlega standsett og breytt í íbúðir. Fallegt útsýni yfir bæinn og stutt að ganga í allar áttir.

Stærð eignar: 97m2 á jarðhæð.
Fjöldi gesta: 7-8
Svefnaðstaða: Tvö svefnherbergi og svefnsófi í stofu.

Herbergi 1: 3 einstaklings rúm (90x200sm)

Herbergi 2: 2 einstaklings rúm (90x200sm)

Stofa: Svefnsófi (130x200sm) 

Gestarúm í geymslu.

Íverusvæði: Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými.
Eldhús: Fínt eldhús og borðbúnaður fyrir 10 manns.
Þvottaaðstaða: Þvottavél inná baðherbergi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtu.
Útisvæði: Ekkert útisvæði. Litlar norðursvalir.
Umhverfi: Íbúðin liggur í brekkunni ofan við eyrina á Siglufirði og í göngufjarlægð frá söfnum, verslunum og veitingastöðum. Tilvalið er að heimsækja bæi í nágrenninu eins og Ólafsfjörð, Hofsós og Dalvík. Eða minni staði eins og Hrísey, Árskógarsand og Hjalteyri. 

Góðar upplýsingar um svæðið er að finna á www.nordurland.is/is

Gæludýr: Nei.
Aukaþjónusta: Hægt er að leigja lín og panta þrif hjá umsjónarmanni.