Húsið Berghóll er staðsett við Austurgötu 5 í Stykkishólmi og er hægt að leigja hjá KÍ bæði yfir sumar- og vetrartímann. Húsið er staðsett í gamla bænum rétt við hafnarsvæðið og það er stutt í alla veitingastaði, sund og verslanir.

 Stærð eignar: 76m2.

Fjöldi gesta: 7

Svefnaðstaða:   Svefnpláss, sængur og koddar fyrir 7 manns.

Íverusvæði: Stofa og borðstofa. . Sjónvarp, útvarp m/CD. 

Eldhús: Öll helstu eldhústæki eru á staðnum. Borðbúnaður fyrir 10 manns.

Þvottaaðstaða: Hvorki þvottavél né þurrkari.

Baðherbergi:Baðherbergi með sturtu

Útisvæði: Verönd, útihúsgögn og gott kolagrill.

Umhverfi: Stykkishólmur er af mörgum talinn einn fallegasti bær landsins og stutt á sögulega staði og í falleg útivistarsvæði. Við hvetjum gesti eindregi til að fara einn dag út í Flatey, ganga á Helgafellið og fara í Bjarnarhöfn svo fátt eitt sé nefnt. Á svæðinu er 9 holu golfvöllur og allt umhverfið vel fallið til gönguferða.

Frekari upplysingar á www.vesturland.is

Gæludýr: Nei