Kennarasamband Íslands á fimm orlofshús í Kjarnabyggð við Kjarnaskóg; 3,5 km sunnan Akureyrar. Kjarnaskógur er skógræktar og útivistarsvæði rétt fyrir innan Akureyri.
Öll aðstaða til útivistar er mjög góð og fallegt umhverfi og fjallasýn. Eyjafjarðardalir bjóða upp á margs konar skoðunarferðir og ekki er langt yfir að Vaglaskógi, Goðafossi, Mývatni, og fleiri náttúruperlum.
Stærð eignar: Gata mánans nr 2 er 70 m²
Fjöldi gesta: 6
Svefnaðstaða: Þrjú svefnherbergi. Sængur og koddar fyrir sex.
Íverusvæði: Stofa, borðkrókur og opny rými. Sjónvarp.
Eldhús: Lítill eldhúskrókur í opnu rými með borðkrók og stofu.
Þvottaaðstaða: Engin
Baðherbergi: Lítið með sturtu.
Útisvæði: Pallur með útihúsgögnum og heitum potti. Gasgrill.
Umhverfi: Akureyri er vaxandi bær og þar eru ótal möguleikar á afþreyingu fyrir ferðamenn. Leita má upplýsinga í Akureyrastofu sem er til húsa í Menningarhúsinu Hofi í hjarta bæjarins. Þar má auk þess hlýða á tónleika og njóta listasýninga í fallegum sýningarsölum. Í bænum er frábær sundlaug og golfvöllur, fjöldi verslana, kaffi- og veitingahúsa m.a. í hinni rómuðu göngugötu. Fjöldi safna er í bænum sem forvitnilegt er skoða eins og t.d. Nonnahús og Sigurhæðir.
Gæludýr: Nei.
Aukaþjónusta:
Í boði er að kaupa þrif hjá umsjónarmanni okkar Rose í síma 690-4240 og rose.kihuri@gmail.com
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR
Sjónvarp: Í eignum KÍ er aðeins boðið upp á RÚV sjónvarp án endurgjalds. Hægt er að leigja áskrift að Stöð 2. Sjá nánar leiðbeiningar í bústað.