Íbúð á annari hæð í Víðilundi sem Orlofssjóður leigir allt árið um kring fyrir félagsmenn. Víðilundur liggur í 10 mínútna göngufjarlægð frá sundlaug Akureyrar. Sutt í miðbæinn og höfnina einnig. 

Stærð eignar: 97fm
Fjöldi gesta: 8
Svefnaðstaða:  Þrjú svefnherbergi og svefnsófi í stofu. 

Íverusvæði: Rúmgott opið svæði fyrir stofu og borðstofu.  Þá er íbúðin með nýju/nýlegu innbúi og hún er mjög vel búin að öllu leyti. 48 tommu sjónvarp, Wii leikjatölva.
Eldhús: Gott eldhús með borðkrók.
Þvottaaðstaða: Í íbúðinni er þvottavél þurrkari, 
Baðherbergi: Rúmgott með sturtuklefa.
Útisvæði: Litlar svalir.
Umhverfi: Staðsett miðsvæðis á Brekkunni, nálægt sundlauginni, KA svæðinu, kjörbúð o.fl.
Gæludýr: Nei

Sameign er mjög snyrtileg með góðri þurrkaðstöðu í kjallara (kjörið fyrir skíðafólk) auk þess sem gott bílastæði er við húsið. 

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR: