Íbúðarhúsið á Múlastekk Skriðdal, 701 Egilsstaðir. Húsið er einbýli á tveimur hæðum, stærð 200 fermetrar.

Herbergi: 5 herbergi eru í húsinu, hvert með einbreiðum rúmum eða kojum en eitt með hjónarúmi. Svefnsófi í stofu Barnarúm og barnastóll eru til staðar. Svefnaðstaða, sængur og koddar fyrir 12 manns.

Fullbúið eldhús með borðbúnaði fyrir 12 manns, eldavél, ísskáp, örbylgjuofni.

Borðstofa er með stóru matarborði og stólum fyrir 8-10 manns.

Baðherbergi: Eitt á hvorri hæð með sturtu.

Stofa: Sjónvarp og dvd tæki, útvarpi, 3ja + 2ja sæta sófasetti, stólum og sófaborði.

Þvottahús: Þvottavél er á jarðhæð, tveir inngangar eru í húsið.

Úti: Aðstaða er til að grilla á sólpalli, gasgrill er í geymslu. Útihúsgögn eru úr plasti.

Í nágrenninu: Margvíslegar gönguleiðir í nágrenninu t.d. á Múlakoll og stangveiði í Múlaá þar sem hún rennur í landi jarðarinnar. Einnig er hægt að kaupa stangveiðileyfi í Skriðuvatni sem er i 5 mín aksturs fjarlægð en þeir sem eru með Veiðikortið hafa aðgang að Skriðuvatni

Leigjendur eru beðnir að virða hámarksfjölda gesta.

Það er með öllu óheimilt að gista í tjaldi, tjaldvagni, húsbíl etc. við húsið.

Gæludýr eru ekki leyfð.

 

 

Nánari upplýsingar eru hér: https://www.ki.is/um-ki/utgafa/frettir-og-pistlar/frettir/2021/fyrirkomulag-utleigu-sumarhusa-liggur-fyrir/