Laufás er gamalt einbýli nálægt Hallormstaðaskógi, staðsett á hugglegum stað þar sem stutt er í eintaka náttúru Austurlands.

Stærð eignar: Húsið er 98 m² auk 50 m² kjallara. 

 Fjöldi gesta: 7

Svefnaðstaða: Gisting í 4 herbergjum. Sængur og koddar fyrir 7.

 

Eldhús: Eldhús með eldavél og ísskáp með frysti. Inn af eldhúsi er búr.  Borðbúnaður fyrir tíu manns.
 

Þvottaaðstaða: Þvottavél er í þvottahúsi á neðri hæð.
 

Baðherbergi:  Uppgert baðherbergi með sturtu.
 

Útisvæði: Umhverfis húsið er trjágarður og sunnan megin er hellulögð stétt með útihúsgögnum og gasgrilli

Umhverfi: Kyrrlátur staður í mjög fallegu umhverfi. Húsið stendur við afleggjarann upp að hótelinu á Hallormsstað og er fyrsta húsið á vinstri hönd.

Gæludýr: Já. En lausaganga ekki leyfð.

Annað:

Vekjum athygli á að við húsið rennur á sem getur verið straumhörð. Einnig er mikil umferð á vegum nálægt eigninni á ákveðnum tímum. Meðferð opins elds er með öllu óheimil. 

Til Egilsstaða eru u.þ.b. 26 km.