Kennarasamband Íslands á fimm orlofshús í Kjarnabyggð við Kjarnaskóg; 3,5 km sunnan Akureyrar. Kjarnaskógur er skógræktar og útivistarsvæði rétt fyrir innan Akureyri.

Öll aðstaða til útivistar er mjög góð og fallegt umhverfi og fjallasýn. Eyjafjarðardalir bjóða upp á margs konar skoðunarferðir og ekki er langt yfir að Vaglaskógi, Goðafossi, Mývatni, og fleiri náttúruperlum.

Stærð eignar: Gata Norðurljósanna nr 7 er 70 m²

Fjöldi gesta: 8

Svefnaðstaða: Þrjú svefnherbergi. Sængur og koddar fyrir átta.

Íverusvæði:  Stofa, borðkrókur og opny rými. Sjónvarp.

Eldhús: Lítill eldhúskrókur í opnu rými með borðkrók og stofu.

Þvottaaðstaða: Engin
 

Baðherbergi: Lítið með sturtu.
 

Útisvæði: Pallur með útihúsgögnum og heitum potti. Gasgrill.
 

Umhverfi: Akureyri er vaxandi bær og þar eru ótal möguleikar á afþreyingu fyrir ferðamenn. Leita má upplýsinga í Akureyrastofu sem er til húsa í Menningarhúsinu Hofi í hjarta bæjarins. Þar má auk þess hlýða á tónleika og njóta listasýninga í fallegum sýningarsölum. Í bænum er frábær sundlaug og golfvöllur, fjöldi verslana, kaffi- og veitingahúsa m.a. í hinni rómuðu göngugötu. Fjöldi safna er í bænum sem forvitnilegt er skoða eins og t.d. Nonnahús og Sigurhæðir.
 

Gæludýr: Nei.
 

Aukaþjónusta:

Í boði er að kaupa þrif hjá umsjónarmanni okkar Rose í síma 690-4240 og rose.kihuri@gmail.com

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR

 

 

Kjarnabyggð - Yfirlitsmynd

Kjarnabyggð - Yfirlitsmynd