Við bjóðum bústaðinn Háabala á Eystra Miðfelli í Hvalfirði til leigu allt árið um kring. Það er stutt í yndislega náttúru Hvalfjarðarins og hvetjum við fólk til að heimsækja Brynjudal og ganga upp að fossinum Glym.

Stærð eignar: 60m2
Fjöldi gesta: 8
Svefnaðstaða: 2 svefnherbergi og svefnsófi. Sængur og koddar eru fyrir 8.

Íverusvæði: Opið rými fyrir eldhús, borðstofu og stofu. Sjónvarp í stofu.

Eldhús: Borðkrókur í opnu rými. Uppþvottavél.

Þvottaaðstaða: Þvottavél í geymslu.

Baðherbergi: Lítið baðherbergi með sturtu.

Útisvæði: Stór og góður sólpallur er við húsið ásamt heitum potti. Gasgrill fylgja húsinu.

Gæludýr: Ekki leyfð.

Umhverfi: Bústaðurinn er í landi Eystra-Miðfells og þaðan er fallegt útsýni yfir Hvalfjörð. Stutt er í sundlaug að Hlöðum. Góðar gönguleiðir og golfvöllur eru í næsta nágrenni. Veiði í vötnum í Svínadal.

 

Aukaþjónusta:

 Boðið er upp á leigu á rúmfatnaði og kostar kr. 1.200 á mann/2400 fyrir tvíbreitt rúm.

Einnig er boðið upp á þrif við lok dvalar fyrir kr. 8.000. (Ef þrif eru keypt, á leigjandi sjálfur að þrífa pott og útigrill).