Húsið er 56m². Gisting er fyrir 6 manns. Svefnherbergin eru tvö og svefnpláss fyrir 6 manns. Í öðru herberginu er hjónarúm en 2 rúm í hinu herberginu. Sængur og koddar eru fyrir 6-8. Yfir vetrartímann er hægt að fá uppbúin rúm og þarf að hafa fyrirfram samband við umsjónarmann vegna þess.  Í húsinu er barnarúm og barnastóll. Stofa og eldhúsi með borðkróki eru í einu rými. Í stofunni er sófi (svefnsófi fyrir 2) , sjónvarp, DVD og útvarp. Í eldhúsi eru eldavél m/ofni, ísskápur, örbylgjuofn og borðbúnaður fyrir 8 manns. Baðherbergi er með sturtu. Í þjónustuhúsi á svæðinu er aðgangur að þvottavél. Úti er pallur með heitum potti, útihúsgögnum og gasgrilli. 

Á Blönduósi er sundlaug, kaffihús, veitingastaðir og möguleiki á margs konar skoðunarferðum.  


 

 

Opnað verður fyrir umsóknir um úthlutun vikuleigu 22. febrúar 2022.

Hægt verður að bóka flakkara frá og með 17. mars 2022.

Nánari upplýsingar eru hér: https://www.ki.is/um-ki/utgafa/frettir-og-pistlar/frettir/2022/styttist-i-uthlutun-orlofshusa/