Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Ásabyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi. Hús nr. 41, 42, og 43 eru nýleg og tekin í notkun vorið 2019. Ásabyggð er skjólgott og gróið svæði.
Stærð eignar: 83m2
Fjöldi gesta: 6
Svefnaðstaða: Þrjú svefnherbergi. Sængur og koddar fyrir sex.
Íverusvæði: Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými.
Eldhús: Eldhúskrókur í opnu rými. Vel búið með uppþvottavél, örbylgjuofn og borðbúnaði fyrir 8 manns.
Þvottaaðstaða: Engin.
Baðherbergi: Lítið bað með sturtu í aðskildu rými.
Útisvæði: Rúmgóður pallur með útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.
Umhverfi:Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.
Gæludýr: Nei.
Aukaþjónusta:
Sjónvarp: Í eignum KÍ er aðeins boðið upp á RÚV sjónvarp án endurgjalds. Snjallsjónvarp er í húsinu og því hægt að tengjast efnisveitum.
Internet: Í eignum KÍ er frítt Netsamband. Upplýsingar undir router.
Í boði er að kaupa þrif hjá umsjónarmanni, sjá nánar í samningi.
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR: