Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Ásabyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi. Ásabyggð 39 hefur fengið allsherjar upplyftingu haustið 2023 og var gert upp af Fr. Fix hönnunarstudioi. Húsið er nú með 4 svefnplássum, góðu alrými og bæði innréttingar, lagnir og gólf verið endurnýjuð.

Ásabyggð er stuttu fyrir utan aðalkjarna þorpsins og liggja sumarhúsin í huggulegri og gróðurmikilli hlíð.

Fjöldi gesta: Fjórir geta gist í húsinu og eru sængur og koddar fyrir 4.

Svefnaðstaða: Svefnherbergi eru tvö. Um er að ræða eitt hjónaherbergi og eitt kojuherbergi. Barnarúm og barnastóll eru í húsinu. 

Íverusvæði:  Borðstofa, stofa og eldhús eru saman í einu stóru opnu rými. Sex einstaklingar geta setið við borðstofuborðið og borðbúnaður er til staðar fyrir 6. Í stofu er sófi og sjónvarp. Eldhúsið er búið öllum helstu tækjum eins og örbylgjuofni, uppþvottavél, kaffikönnu og ísskáp með litlu frystihólfi. 

Útisvæði: Viðarpallur með heitum potti, útihúsgögnum og gasgrilli.

Umhverfi: Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir. Við hvetjum gesti eindregið til að kynna sér svæðið betur á www.south.is/is

Vinsamlega athugið

 

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR:

Yfirlitsmynd, Ásabyggð Flúðir

Yfirlitsmynd, Ásabyggð Flúðir