Frá 7.júní 2024 verður dýrahald leyft í Háamóa 14.  Tekið skal fram að lausaganga hunda er alfarið bönnuð.

Kennarasambandið á 13 orlofshús við Háamóa í Heiðarbyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi. Háimói 14 (Hátorfa) er 63m² hús með 29m² gestahúsi. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi en hitt með koju, með gistingu fyrir fjóra. Í gestahúsi er hjónarúm og svefnsófi með gistingu fyrir fjóra. Í gestahúsi er salerni en ekki sturta. Sængur og koddar eru fyrir átta. Stór og góður leikvöllur við húsið. Hægt er að kaupa aðgang að Stöð2. Leiðbeiningar um kaup eru í bústaðnum.

Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.

Sjónvarp: Í eignum KÍ er aðeins boðið upp á RÚV sjónvarp án endurgjalds. Hægt er að leigja áskrift að Stöð 2. Sjá nánar leiðbeiningar í bústað.

Internet: Í eignum KÍ er ekki boðið frítt netsamband. Á Flúðum og í Kjarnabyggð er hægt að tengjast þráðlausu neti Vodafone gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar eru í húsinu.

Í boði er að kaupa þrif hjá umsjónarmanni, sjá nánar í samningi.

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR:

 


Kort Heiðarbyggð, Flúðir - með innfelldri loftmynd

Kort Heiðarbyggð, Flúðir - með innfelldri loftmynd