Við bjóðum bústaðinn Austurbala á Eystra Miðfelli í Hvalfirði til leigu allt árið um kring. Það er stutt í yndislega náttúru Hvalfjarðarins og hvetjum við fólk til að heimsækja Brynjudal og ganga upp að fossinum Glym.

Stærð eignar: 50 m2 og svefnloft.

Fjöldi gesta: 6-8

Svefnaðstaða: 2 svefnherbergi og svefnloft. Sængur og koddar fyrir 8 manns.

Íverusvæði: Stofa, borðstofa og eldhús í einu opnu rými. Sjónvarp í stofu.

Eldhús: Lítið e

 

Baðherbergi: Lítið baðherbergi með sturtu

Útisvæði: Sólpallur er við húsið með útihúsgögnum. Einng er gasgrilli og heitur pottur á staðnum.

Gæludýr leyfð: Já. Gestir geta tekið með sér 1 gæludýr. 

Umhverfi:  Bústaðurinn er í landi Eystra-Miðfells og þaðan er fallegt útsýni yfir Hvalfjörð. Stutt er í sundlaug að Hlöðum. Góðar gönguleiðir og golfvöllur eru í næsta nágrenni. Veiði í vötnum í Svínadal.

 

Aukaþjónusta:

Boðið er upp á leigu á rúmfatnaði á kr. 1.200 á mann/2.400 kr. fyrir tvíbreitt.

Einnig er boðið upp á þrif við lok dvalar fyrir kr. 8.000. (Ef þrif eru keypt, á leigjandi sjálfur að þrífa pott og útigrill).