Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Ásabyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi. Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.
Hús númer 35 er 53m² og er hefðbundinn sumarbústaður með heitum potti. Dýr eru leyfð í þessu húsi.
Stærð eignar: 53m2
Fjöldi gesta: 6
Svefnaðstaða: 3 svefnherbergi. Sængur og koddar fyrir 6.
Íverusvæði: Stofa, eldhús og borðstofa í einu opnu rými.
Eldhús: Vel útbúið eldhús í opnu rými. Uppþvottavél, úyvarp, kaffivél og örbylgjuofn.
Þvottaaðstaða: Engin.
Baðherbergi: Baðherbergi og sturta í sér rými.
Útisvæði: Rúmgóður pallur með útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.
Umhverfi:Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.
Stærð eignar: 53m2
Gæludýr: Já í húsi 35 og 36.
Aukaþjónusta:
Sjónvarp: Í eignum KÍ er aðeins boðið upp á RÚV sjónvarp án endurgjalds. Snjallsjónvarp er í húsinu og því hægt að tengjast efnisveitum.
Internet: Í eignum KÍ er frítt Netsamband. Upplýsingar undir router.
Í boði er að kaupa þrif, nánari upplýsingar í samningi.
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR:
