Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Ásabyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi. Flúðir er vinsæll staður að heimsækja og er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði bæði á staðnum og í næsta nágrenni. Ásabyggð er stuttu fyrir utan aðalkjarna þorpsins og liggja sumarhúsin í huggulegri og gróðurmikilli hlíð.
Hús númer 34 er 83m² og er hefðbundinn sumarbústaður með heitum potti.
Fjöldi gesta: Sex manns geta gist í húsinu og eru sængur og koddar fyrir sjö.
Svefnaðstaða: Svefnherbergi eru þrjú. Um er að ræða tvö hjónaherbergi og eitt kojuherbergi.
Íverusvæði: Borðstofa, stofa og eldhús eru saman í einu stóru opnu rými. Átta manns geta setið við borðstofuborðið og er borðbúnaður fyrir sama fjölda í húsinu. Í stofu er hornsófi og sjónvarp. Eldhúsið er búið öllum helstu tækjum eins og örbylgjuofni, uppþvottavél, kaffikönnu og ísskáp með litlum frystihólfi.
Útisvæði: stór pallur með útihúsgögnum og gasgrilli.
Umhverfi: Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir. Við hvetjum gesti eindregið til að kynna sér svæðið betur á www.south.is/is
Vinsamlega athugið
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR: