Frá 7.júní 2024 verður leyft að taka dýr með sér í Ásabyggð 32.

Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Ásabyggð við Flúðir í Hrunamannahreppi.  Flúðir er vinsæll staður að heimsækja og er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði bæði á staðnum og í næsta nágrenni. Ásabyggð er stuttu fyrir utan aðalkjarna þorpsins og liggja sumarhúsin huggulegri og gróðurmikilli hlíð. 

Hús númer 32 er 76m² og er hefðbundinn sumarbústaður með heitum potti.

Fjöldi gesta: Sex manns geta gist í húsinu og eru sængur og koddar fyrir sjö.

Svefnaðstaða: Svefnherbergi eru þrjú. Um er að ræða tvö hjónaherbergi og eitt kojuherbergi.

Íverusvæði:  Borðstofa, stofa og eldhús eru saman í einu stóru opnu rými. Átta manns geta setið við borðstofuborðið og er borðbúnaður fyrir sama fjölda í húsinu. Í stofu er hornsófi og sjónvarp. Eldhúsið er búið öllum helstu tækjum eins og örbylgjuofni, uppþvottavél, kaffikönnu og ísskáp með litlu frystihólfi.

Þvottaaðstaða: Þvottavél er í bústaðnum.

Baðherbergi: Sturta með klefa og handlaug.

Útisvæði: stór pallur með útihúsgögnum og gasgrilli.

Umhverfi: Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir. Við hvetjum gesti eindregið til að kynna sér svæðið betur á www.south.is/is

Vinsamlega athugið

 

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR: