Frá 7.júní 2024 verður dýrahald leyft í Háamóa 11. Tekið skal fram að lausaganga hunda er alfarið bönnuð.
Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Heiðarbyggð í Hrunamannahreppi. Heitur pottur er við hvert hús á rúmgóðum palli. Húsin við Háamóa nr. 1, 3, 5, 7, 9 og 11 eru öll eins.
Stærð eignar: 87 m² að stærð
Fjöldi gesta: 8
Svefnaðstaða: Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Sængur og koddar fyrir 8 manns.
Íverusvæði: Opið rými þar sem eldhús, borðstofa og stofa koma saman. Gengið út á pall útfrá eldhúsi.
Eldhús: Vel útbúið eldhús í opnu rými með uppþvottavél, örbylgjuofni og borðbúnaði fyrir 8 manns.
Þvottaaðstaða: Engin.
Baðherbergi: Gott baðherbergi með sturtu. Gengið beint út á pall úr baðherbergi.
Útisvæði: Góður pallur með útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.
Umhverfi: Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.
Gæludýr: Nei. Eru ekki leyfð á svæði Heiðarbyggðar.
Aukaþjónusta:
Sjónvarp: Í eignum KÍ er aðeins boðið upp á RÚV sjónvarp án endurgjalds. Hægt er að leigja áskrift að Stöð 2. Sjá nánar leiðbeiningar í bústað.
Internet: Í eignum KÍ er ekki boðið frítt netsamband. Á Flúðum og í Kjarnabyggð er hægt að tengjast þráðlausu neti Vodafone gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar eru í húsinu.
Í boði er að kaupa þrif hjá umsjónarmanni, sjá nánar í samningi.
Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR