Kennarasamband Íslands á þrettán orlofshús í Heiðarbyggð í landi Ásatúns í Hrunamannahreppi. Heitur pottur er við hvert hús. Húsin við Háamóa nr. 1, 3, 5, 7, 9 og 11 eru 87 m² að stærð. Í þeim eru þrjú svefnherbergi, tvö með hjónarúmi auk barnarúms og eitt herbergi með tveimur kojum (þ.e. 4 x rúmstæði, 2 x neðri kojur og 2 x efri kojur). Svefnpláss er fyrir átta.

Í grenndinni eru golfvellir, hótel, kaffihús/bar, verslun, upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, sundlaug og íþróttahús. Margir sögufrægir staðir og náttúruvætti eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.

Sjónvarp: Í eignum KÍ er aðeins boðið upp á RÚV sjónvarp án endurgjalds. Hægt er að leigja áskrift að Stöð 2. Sjá nánar leiðbeiningar í bústað.

Internet: Í eignum KÍ er ekki boðið frítt netsamband. Á Flúðum og í Kjarnabyggð er hægt að tengjast þráðlausu neti Vodafone gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar eru í húsinu.

Í boði er að kaupa þrif hjá umsjónarmanni, sjá nánar í samningi. 

Leigjendur eru hvattir til að kynna sér reglur Orlofssjóðs KÍ með því að smella HÉR

 

Kort Heiðarbyggð, Flúðir - með innfelldri loftmynd

Kort Heiðarbyggð, Flúðir - með innfelldri loftmynd