Í hverfi Álftabyggðar á Flúðum er heilsársbústaður í eigu FVFÍ. Hann er 60 fermetrar, þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús og bað. Svefnpláss fyrir 8 manns. Stór útiverönd er ásamt heitum potti, garðhúsgögnum og gasgrilli. Þetta er glæsilegur bústaður, búinn öllum nútímaþægindum. Í eldhúsi er fullkomin eldavél, örbygjuofn og önnur helstu rafmagnstæki. Leiktæki eru á lóðinni. Stutt er í ýmsa afþreyingu, t.d. er fullbúinn 18 holu golfvöllur rétt hjá bústaðnum. Garðyrkjubændur selja afurðir sínar víðsvegar á svæðinu og á Flúðum er sundlaug, hótel, matvöruverslun, nokkrir veitingastaðir og banki. Skemmtileg dagsferð er t.d. á Gullfoss og Geysi, stutt í Friðheima og hálftíma aksturí Laugarás og Skálholt. Leiðbeiningar frá Flúðum. Keyrt sömu leið og að Flúða golfvellinum. Yfir brúnna eftir Skeiða- og Hrunamannavegi og þegar kemur að hringtorginu taka þá Hvítárholts afleggjarann. Bústaðurinn er þá sýnilegur fljótlega til hægri og er beygjan inn að honum merkt Álftabyggð.
Húsið er 70 fm auk 20 fm svefnlofts. Gistiaðstaða er fyrir 10-12 manns. Við húsið er rúmgóð verönd með gasgrilli, garðhúsgögnum og heitum potti. Stofan er vel búin húsmunum og er með DVD og sjónvarpi. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi og ferðarúmi fyrir ungabörn en hitt með koju og rúmi. Á svefnlofti eru 2 rúm og 4 dýnur. Í eldhúsi eru öll algeng eldhúsáhöld og rafmagnstæki s.s. eldavél, ofn, örbylgjuofn, ísskápur, kaffivél og Nespresso kaffivél, samlokugrill, blandari, vöfflujárn, þeytari og brauðrist. Barnastóll er til staðar. Salerni er með sturtuaðstöðu. Í skáp milli eldhúss og baðherbergis er þvottavél. Húsið er á fallegum stað í miðjum Húsafellsskóginum og stendur við Kiðárskóga 4. Margir áhugaverðir staðir eru í nágrenninu og öll helsta þjónusta t.d. þjónustumiðstöð, sundlaug, verslun, veitingastaður og hótel. Hægt er að fara í golf, Giljaböð, skoða hina þekktu hella Víðgemli og Surtshelli, veiða í Norðlingafljóti, velja á milli fjölda gönguleiða auk skipulagðra ferða á Langjökul.
Hyrnuland 3 er 116 fm orlofshús á Akureyri með svefnpláss fyrir 6. Þrjú svefnherbergi , tvíbreið rúm eru í endaherbergjum og tvískipt í miðju herbergi. Tvö baðherbergi eru í húsinu með sturtu og gengið út í heitan pott á verönd úr stærra baðherbergi. Geymsla er áföst húsinu þar sem er þvottavél og þurrkari ásamt rými fyrir skíðabúnað ofl. Loftræstikerfi er í húsinu . Húsið er vel búið og staðsett í neðri Hálöndum í Hlíðarfjalli með fallegu útsýni út á Eyjaförð. Nespresso kaffivél er á staðnum.
Holtaland er um 100 fm orlofshús á Akureyri með þremur svefnherbergi og gistimöguleika fyrir 8 manns. Tvö baðherbergi eru í húsinu, annað með baðaðstöðu sem tengist pottrými en hitt deilir rými með þvottaherbergi. Í þvottarými er hægt að stilla loftræstikerfi og er mælt með að það sé notað þegar mikil notkun er t.d. á heitum potti og baðherbergi til að koma í veg fyrir rakamyndun. Heitur pottur er inni í húsinu með beinu aðgengi út á suðurverönd. Stór geymsla með sérinngangi er í húsinu en þar hægt að þurrk ýmsan viðlegubúnað. Húsið er vel búið og staðsett í efri Hálöndum í Hlíðarfjalli með fallegu útsýni út á Eyjaförð. Nespresso kaffivél er á staðnum.
Í Suðursveit í Austur Skaftafellssýslu eru tveir bústaðir. Leigutími er yfir sumartímann, þ.e. frá því í byrjun júní fram í september. Húsin eru notaleg, en aðeins komin til ára sinna. Svefnherbergi eru tvö. Þau eru ágætlega búin húsgögnum og öðrum búnaði. Geta 6-8 manns gist í einu í hvoru húsinu um sig.Umhverfið er mjög fallegt og stutt í margar skemmtilegar gönguleiðir. Húsin eru staðsett í u.þ.b. 60 km. fjarlægð frá Höfn í Hornafirði. Ágætis veiðivötn eru í Smyrlabjargarfjalli og eru veiðileyfi seld á bæ á leið til fjallsins. Merking er við veginn. Fluglalíf er mjög fjölskrúðugt í Suðursveit. Næsta sundlaug er í Öræfum 15-20 mín. akstur að Jökulsárlóni. Verslun er að Fagurhólsmýri en þangað er um 50 km. akstur. Hér má sjá staðsetningu bústaðanna á korti.