Íbúðin er 55 ferm. og skiptist í tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi, hitt með koju þar sem neðri kojan er tvíbreið þannig að þar er svefnpláss fyrir 3. Íbúðun er nýstandsett og öll hin glæsilegasta. Sængur og koddar eru fyrir sex. Barnastóll og barnarúm eru í húsinu en ekki barnasæng. Eldhús- og borðbúnaður er fyrir 10-12 manns. Þvottavél er í baðherbergi.

 Lín á rúm er í skáp í svefnherbergi auk handklæða.  Eitt sett á mann.  

ATH.   Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla í húsinu.