Ægisból er nýjasta orlofshús FS í Brattahlíð. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi með 8 svefnplássum alls, stórt alrými sem er elhús, stofa og borðstofa.  Í húsinu eru tvö salerni með sturtum. Í einu svefnherbergi er hjónarúm og í tveimur eru kojur, þar sem neðra rúmið er tvíbreitt og efra rúmið er einbreitt. Barnarúm og barnastóll er í húsinu en ekki barnasæng. Borðbúnaður er fyrir 10 manns auk venjulegra eldhúsáhalda. Góð verönd er umhverfis húsið og heitur pottur.

ATH.   Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla í húsinu.