Gengið er inní íbúðina úr garðinum. Eitt svefnherbergi er í íbúðinni með hjónarúmi. Eldhúskrókur og rúmgóð stofa með tvíbreiðum svefnsófa. Barnarúm og barnastóll er í íbúðinni en ekki barnasæng. Auk þess er léttur svefnbeddi. Sængur og koddar fyrir fimm manns. Borðbúnaður fyrir fimm.

 Lín á rúm er í skáp í svefnherbergi auk handklæða.  Eitt sett á mann.  

ATH.    Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla í íbúðinni og bílageymslunni.