Íbúðin er í Austurbrú 8, fyrstu hæð, nr 102, lyftuhús. Íbúðin er 110 m2. Hún saman stendur af stóru alrými, stofa, borðstofa, litlu svefnherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús er innaf baði og þar er þvottavél og þurrkari. Stórt eldhús með útsýni út á Pollinn. Svalir í austur úr borðstofu og gengið út í garð úr stofu.  Bílastæði er í bílageymslu merkt 102. Keyrt er inn í bílageymslu að norðan, bílageymslan er undir garðinum, gjaldfrítt bílastæði eru fyrir framan húsið. Gistiaðstaða er fyrir 7, sængur og koddar eru fyrir sama fjölda. Barnastóll og barnaferðarúm eru en ekki barnasæng. Svefnsófar í stofu eru með svampdýnum, 80*200. Úti húsgögn eru í garði.

Lín á rúm er í skáp í svefnherbergi auk handklæða.  Eitt sett á mann.  

ATH.    Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla í íbúðinni og bílageymslunni.