Íbúðin er í fjölbýlishúsi staðsett í útjaðri Kópavogs skammt frá Smáralind verslunarmiðstöðinni. Fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni og stutt í þjónustu.
Félagið leggur mikla áherslu á góða umgengni og tilitssemi við aðra íbúa hússins. Gerist menn bortlegir við húsreglur fyrirgera þeir sér frekari rétt til að fá leigðar íbúðir eða hús af félaginu. Húsreglurnar má finna í möppu í skáp í íbúðinni.
Íbúðin er vel útbúin með tveimur svefnherbergjum og gistiaðstöu fyrir 6 manns. Góð bílastæði eru við húsið og bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni.
Komu og brottfarartími: Leigutaka er heimilt að fara inn í íbúðina kl. 16:00 á komudegi. Brottfarartími er kl. 14:00.
Lyklar: Lyklabox eru staðsett við hverja íbúð nema að 302, þar er lyklaboxið við hlið íbúðar 204. Eins er hægt að sækja lykla af íbúðinni á Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík og skal skila strax að lokinni dvöl aftur á skrifstofuna.
Keybox is located next to flat 204 - the code is 2460
|